Um okkur

Við stofnuðum Vefsmiði til að gera vefsíðugerð einfaldari fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi. Okkar reynsla af hefðbundnum vefsíðustofum var oft sú sama: ferlið óljóst, kostnaður ófyrirsjáanlegur og mikið talað um tæknina en minna um það sem skiptir máli: að vefsíðan virki og skili árangri.

Hjá okkur er megináherslan á skýr skilaboð, einfalt flæði og traustan grunn. Við byrjum á því að skilja hvað þú selur, hverjum, og hvað þú vilt að gestir geri á síðunni. Síðan setjum við upp vefsíðu sem er byggð fyrir síma, hleðst hratt, og leiðir fólk á næsta skref, hvort sem það er að hringja, senda fyrirspurn eða bóka tíma.

Slagorðið okkar, „Vefsíður á mannamáli“, lýsir nálguninni vel. Við útskýrum hlutina skýrt, segjum til um næstu skref og höldum ferlinu einföldu. Þú þarft ekki að kunna tæknimálið við sjáum um vefsíðuna og tæknina, og þú einbeitir þér að rekstrinum.

Þegar vefsíðan er komin á traustan grunn getum við líka hjálpað þér að auka sýnileika og vöxt með:

  • SEO (leitarvélabestun) til að byggja upp stöðuga eftirspurn

  • AI-sýnileika með skýrri uppbyggingu, FAQ og traustmerkjum

  • Google Ads þegar þú vilt ná í eftirspurnina strax

  • Hýsingu og viðhaldi svo síðan haldist örugg, uppfærð og hröð

Ef þú vilt vefsíðu sem er einföld, traust og byggð til að skila sér, þá getum við hjálpað þér með það.

– Stefán Magni, eigandi

Stefán Magni, eigandi